Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens
Um viðburðinn
Takk fyrir frábærar viðtökur í Bæjarbíói :)
Uppselt er á tónleikana 14. desember
Uppselt er á aukatónleikana 13. desember
Uppselt er á aukatónleikana 12. desember
Miðasala hefst í dag kl. 10 á þriðju aukatónleika þann 11. desember á midi.is
Bylgjan í samvinnu við prime kynna Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla. Bubbi bregður ekki út af vananum þetta árið og heldur af stað með kassagítarinn. Hann verður á kunnuglegum slóðum. Tónleikaröðin hefst i Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudagskvöldið 14. desember. Síðan verður haldið á Akranes og Akureyri og endað á sjálfa þorláksmessu í Eldborgarsal Hörpu.
Miðasala hafin á midi.is
Allar nánari upplýsingar eru á prime.is og á facebook síðum Bubba Morthens og Prime.