A landslið kvenna - Vináttuleikur
Um viðburðinn
ÍSLAND - BRASILÍA
Þriðjudaginn 13. júní klukkan 18:30
Laugardalsvelli
Stelpurnar okkar leika kveðjuleik á Laugardalsvelli gegn Brasilíu áður en haldið er á EM í Hollandi. Þetta er engin smáleikur en Brasilía, eitt besta landsliðs heims, mætir á Laugardalsvöllinn og etur kappi við stelpurnar okkar. Með Brasilíu leika margar af bestu knattspyrnukonum heims og fær íslenska landsliðið því verðugt verkefni á Laugardalsvelli þann 13. júní.
Það verður samba-stemning í Laugardalnum og stelpurnar vilja fá FULLAN Laugardalsvöll!
Mætum með fjölskylduna og kveðjum stelpurnar okkar á viðeigandi hátt!
ÁFRAM ÍSLAND!